14.11.2013 | 19:44
Atvinnuumsókn og framtíðarplön, fullorðins :)
Lag dagsins:
Sjúkt lag! Gefið því séns :D
Ég er í afskaplega góðu skapi í dag! ætli það útskýri ekki að ég sé að blogga svona stuttu eftir seinasta blogg :) Það er eins og ég hef talað um áður náttúrulega farið að kólna úti en svo koma þessir dagar þar sem hitastigið fer upp fyrir 10°C og sólin skín, þá er ekki annað hægt en að brosa framan í heiminn!
Ég fór í tíma kl 9 í morgun, lífsleikni. Eins og áfangaheitið gefur til kynna þá gerum við bara akkúrat ekki neitt í þessum tímum. Sitjum pretty much í tvo tíma og hlustum á kennarann babbla um allskonar mis áhugaverð umræðuefni. Í dag reyndar var tíminn mjög áhugaverður því hann var að tala um hvernig við veljum áfanga fyrir næstu önn. Ég með mína ofsatilhlökkun alltaf hreint í bland við minn athyglisbrest gat náttúrulega ekki bara setið og hlustað á hann tala um áfangana svo ég opnaði valið í tölvunni og nýtti þessa tvo tíma í að skipuleggja næstu önn. HVERSU NÆS, ég get valið hvort ég vilji hafa tíma kl 9 alla daga vikunnar, hvort ég vilji hafa tvo tíma kl 9, rest kl 11. Ég get valið að hafa bara einn tíma á mánudögum, vera með þétta eða dreifða stundaskrá, hvort ég vilji hafa 2 tíma eyðu á þriðjudögum til að fara í ræktina eða hvort ég vilji bara vera í tímum eftir hádegi. Þetta er náttúrulega aðeins of mikil snilld. Ég ætla samt að vera skynsöm og velja tíma frekar snemma á daginn, hafa alla söngtíma seinnipartinn svo röddin sé almennilega vöknuð, passa að hafa eyður stundum sem ég get þá nýtt til að læra og allra mikilvægast er svo náttúrulega að hafa alltaf góðan tíma fyrir hádegis mat!! Forgangsröðun gott fólk, forgangsröðun :D
Ég fór svo í starfsviðtal, eða réttara sagt upplýsinga fund um að vinna á campus. Nú mun ég fara að fá starfstilboð gegn um póstinn minn og svo mun ég sækja um þau sem mér líst vel á með því að svara þessum tölvupóstum. Rosalega spennandi :) og ekki mun skemma að fá smá pening út úr þessu!
Kostir við 98 Hemenway:
- Rólegt og hljóðlátt, alltaf svefnfriður
- Við þurfum actually að fara út á daginn til að fara í tíma annað en þeir sem búa í 150 byggingunni því þar er mötuneytið og flestir tímar
- Góð æfingaherbergi niðri í kjallara
- Eigum nokkra góða vini í þessari byggingu
- Nálægt ræktinni sem við erum í núna
Gallar við 98 Hemenway:
- Það verður rosalega kallt hérna á veturna og þa mun 5 mínútna labbið verða erfitt kl 8 á morgnanna
- Byggingin er mjög gömul og gólfin marra
- Engin loftræsting og frekar skrítin hitun
- Ég þarf að vera í efri koju sem er þreytandi til lengdar
Kostir við 160 Massachussetts Avenue (Nýja byggingin hliðiná 150 bygginunni)
- Þar mun vera nýtt mötuneyti, líkamsrækt (þyrftum ekki að borga $30 á mán fyrir ræktina eins og við gerum núna) og æfingaherbergi
- Flott herbergi, þetta er náttúrulega allt nýbyggt
- Vonandi gætum við verið bara tvær í herbergi
- Getur bara skotist niður með lyftunni til að fara í mat (sérstaklega gott á morgnanna)
- Myndum þá búa í sömu byggingu og allir nánustu vinirnir
- Það eru sameiginleg baðherbergi fyrir alla hæðina skilst okkur.. OJ
- Sem þýðir þá ekkert rennandi vatn í herbergjunum :(
- Það gæti orðið galli að þurfa aldrei að fara út úr byggingunni til að fara í mat, kannski yrði maður latari
- Við þyrftum að flytja út úr okkar herbergi fyrir jól, geyma dótið einhverstaðar og flytja svo inn í 160 þegar við kæmum aftur í janúar
- Ég kem aftur 16. jan en Jess kemur ekki fyrr en 19. svo það yrði eitthvað smá vesen, hún þyrfti þá í rauninni að færa flugið sitt
- Mjög líklega minni svefnfriður, alltaf eitthvað að gerast á göngunum og meiri læti
Það er margt sem maður þarf að huga að, við erum svo hræddar um að muna sjá eftir því ef við flytjum eða þá að sjá eftir því að hafa ekki flutt ef vinir okkar elska nýju bygginguna. Það ætla allir að færa sig þangað, spurningin er bara, viljum við halda í þrjóskuna og lifa áfram í gömlu krúttlegu byggingunni okkar eða viljum við fylgja með straumnum og flytja inn í það nýjasta nýja...?
Við sláum vonandi botn í þetta bráðum :) Þeir sem hafa ráð eða tips endilega deilið!
xxx
Um bloggið
The Big City Life!
Tenglar
Mínir tenglar
- Berklee College of Music Heimasíða skólans
- Weather.com Ég kíki hérna á hverjum degi til að plana outfit morgundagsins
Inga María
- Styrkið mig í mínu námi! Styrktarsíða fyrir námsgjöldum
- Soundcloud Einhverjar upptökur frá mér
- YouTube Inga's YouTube
- Twitter Twitter aðgangur minn
- Instagram Instagram aðgangur minn
- Facebook Fanpage
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.